Það getur verið athyglisvert að skoða innfutning mótorhjóla á stríðsárunum, en þá jókst fjöldi bifhjóla í landinu töluvert. Árið 1944 voru 172 bifhjól skráð í landinu en þar er einungis átt við stór bifhjól, og ekki bifhjól setuliðsmanna hersins. Flest þeirra voru í Reykjavík eða 88, en næst kom Hafnarfjörður ásamt Gullbringu- og Kjósarsýslu með 25 stykki. Á Akureyri voru þá 14 skráð bifhjól sem og í Árnessýslu, einnig með 14 bifhjól. Meira að segja á Akranesi eru 4 bifhjól skráð, en ætla má að sum bifhjól á landsbyggðinni hafi ekki verið á skrá þótt þau hafi verið í einhverri notkun. Algengasta tegundin árið 1944 er BSA með 32 eintök og næst Triumph með 26.

Eins og áður sagði var talsvert um flutning til landsins á bifhjólum, þrátt fyrir að engin umboðssala væri á þeim á þessum tíma. Frá árunum 1938 til 1944 eru 71 bifhjól flutt til landsins og má ætla að flest þeirra hafi komið hingað notuð með fiskiskipum, sem lönduðu afla í Evrópu og þá flest í Bretlandi. Mestur var innflutningurinn árið 1944 en þá voru 25 bifhjól flutt til landsins með þessum hætti. Meira má lesa um þessa hluti í næstu bók minni, um evrópsku mótorhjólin sem nú er á leið í prentun og kemur út í sumar.





